Afhending

Almennt

Afhendingartími pantana er að jafnaði 1-4 virkir dagar eftir að pöntun berst og greiðsla hefur átt sér stað en gæti verið lengri í kringum jól og stóra verslunardaga. Ef vara er ekki til á lager munum við hafa samband og finna lausn á málinu. Vörurnar frá okkur eru sendar til viðtakenda með Póstinum og fær viðkomandi fær tilkynningu þegar varan er komin í póst. Hægt er að sækja vörur að kostnaðarlausu í Reykjanesbæ.


Greiðsla- og sendingarkostnaður

Hægt er að greiða með debet- og kreditkortum í gegnum örugga greiðslugátt Rapyd, en korthafi er fluttur yfir á viðeigandi síðu þegar kemur að greiðslu.

Sendingarkostnaður bætist við pöntun áður en greiðsla fer fram. Sendingarkostnaður fellur niður ef verslað er fyrir 20.000 kr. eða meira.

 Skilafrestur og endurgreiðsluréttur

Vörum sem eru pantaðar af netinu er hægt að skila innan 30 daga og fá endurgreiðslu. Skilyrði er að varan sé óskemmd í upprunalegum umbúðum og kvittun fylgi. Sendingarkostnaður er ekki endurgreiddur nema við eigi.Viðskiptavinir skulu bera beinan kostnað af því að skila vöru. Viðskiptavinir skulu tilkynna um ákvörðun sína um að falla frá samningi með ótvíræðri yfirlýsingu þar um innan frestsins, en það er m.a. hægt að gera með því að senda tölvupóst á netfangið hjarn@hjarn.is

ATH: Sérmerktar vörur eru ekki endurgreiddar nema um galla sér að ræða.